23.10.2011 16:55

Haustfréttir

Skorri og Blíða á góðum degi  

Þá er komið að því að gera upp haustið........

Við fluttum okkur um set um miðjan september og búum nú að Hólum í Hjaltadal þar sem Erlingur starfar sem reiðkennari, en höldum einnig heimili á Sandhaugum þar sem feður okkar Ingvar og Óli sjá um sauðfjár og hundabúskapinn.

Haustverkin gengu vel með tilheyrandi smalamennskum og sláturtíð, og komum við vel undan sumri hvað það varðar. Þó setti það strik í reikninginn að aðalsmalinn á heimilinu til langs tíma, Skorri Bordercollie hundurinn hans Erlings kvaddi þennan heim nú síðla sumars. En hans var sárt saknað við smölun nú í haust og erfitt verður að fylla í hans spor hvað drift, vilja og ósérhlífni varðar.

Hlynur okkar fór í unghestahólf á Syðra-Fjalli, en ekki voru þeir Máttur og Mugison (Máttar og Möttuls-synir) jafn heppnir, en Gestur dýralæknir kom á dögunum og gelti þá fyrir okkur. Fallegir folar þó.....

Gunnar frá Hlíðarenda, stóðhestsefnið okkar undan Karon og Gígjari  er farinn að stíga sín fyrstu skref í tamningu, en hann var tekinn inn á dögunum og gengur bara vel með folann, enda mjög ljúfur og meðfærilegur í alla staði.  Þorbirna okkar var líka tekin inn á sama tíma, en hún er nú á 5 vetur, undan Nótt og Gauta,  hún var frumtamin af Veroniku sem var verknemi hjá Erlingi í fyrra. Gaman verður að sjá hvernig hún þróast, en okkur líst bara nokkuð vel á hana. Nokkur hross eru einnig komin í þjálfun hjá Erlingi og von er á fleirum þegar líða tekur á haustið/veturinn.

Mikið er líka að gera í reiðkennslu hjá Erlingi utan vinnu, en hann sér áfram um Reiðmanninn http://vefur.lbhi.is/pages/1698 á Akureyri,  ásamt því að sinna reglulegri kennslu í Svíþjóð. 

Þá held ég að haustið hafi verið gert upp í stórum dráttum !

 

 

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 48
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 44473
Samtals gestir: 14941
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:32:33

KS-Deildin Tölt

atburður liðinn í

1 mánuð

26 daga

Fólkið á bak við tjöldin.....

Nafn:

Diljá og Erlingur

Farsími:

892-5459

Heimilisfang:

Sandhaugar

Staðsetning:

Bárðardalur

Heimasími:

461-4762

Önnur vefsíða:

erlinguri@gmail.com

Tenglar

clockhere