28.11.2011 23:00

Drottningarnar komnar á hús !

 

Allt gott er að frétta héðan af Hólum, og mikið að gera. Ganga tamningar og þjálfun hrossa vel fyrir sig. Þorbirna okkar tekur góðum breytingum, og er ég bara nokkuð ánægð með hana-en hún er slysafang, fædd 2007. Þjálfunarhrossin líst okkur bara nokkuð vel á, en þau eru frekar jákvæð og skemmtileg.

Annars er frá því að segja að þær stöllur Þerna okkar og Hátíð frá Syðra-Fjalli komu á hús núna í vikunni, og er mikil tilhlökkun að byrja á þeim, enda miklir gæðingar þar á ferð. Þær eru nokkuð ólíkar, en sú fyrrnefnda er klárhryssa og sú síðarnefnda er alhliða. Stefnt er með þær báðar í dóm í vor, en þess má geta að Hátíð er eitt af hæst dæmdu afkvæmum Blæs frá Torfunesi og var m.a á Landsmótinu nú í sumar í 5.v flokknum. Teljum við að þær eigi báðar ennþá töluvert inni.

Síðustu kennsludagar Reiðmannsinns voru s.l helgi og er "hann" því kominn í jólafrí þetta árið. Næst á dagskrá er svo kennsluferð til Svíþjóðar dagana 1 til 5 des, þar sem Erlingur kennir á tveimur stöðum í þetta skiptið.

Læt þetta gott heita í bili, góðar stundir !

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 48
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 44473
Samtals gestir: 14941
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:32:33

KS-Deildin Tölt

atburður liðinn í

1 mánuð

26 daga

Fólkið á bak við tjöldin.....

Nafn:

Diljá og Erlingur

Farsími:

892-5459

Heimilisfang:

Sandhaugar

Staðsetning:

Bárðardalur

Heimasími:

461-4762

Önnur vefsíða:

erlinguri@gmail.com

Tenglar

clockhere