Færslur: 2011 Desember
30.12.2011 15:25
Ný hryssa bætist í hópinn
Gleðileg jól öll sömul !!
Desember mánuður hefur verið frekar rólegur, en hann byrjaði á Svíþjóðarferð Erlings þar sem hann var við kennslu. Svo tóku við próf á Hólum og um miðjan mánuð vorum við nánast komin í "jólafrí". Tókum við hrossin að sjálfsögðu með okkur heim í sveitina, svo hægt væri að sinna þeim sem skyldi yfir hátíðarnar. Gott var að koma heim í Bárðardalinn til fjölskyldunnar og allra hundanna og kattarins, en hann er mjög ósáttur við fjarveru okkar-enda mikill selskapsköttur !!
Milli jóla og nýárs var öllum hrossunum smalað heim, klipptir hófar og gefið ormalyf. Þótti okkur ástand hrossanna býsna gott, voru þau sælleg og litu vel út.
Frá því er helst að segja í fréttum að bæst hefur ný hryssa í hrossahópinn okkar, og læt ég fylgja með smá upplýsingar um hana hér að neðan:
Bylting frá Kaldbak er undan Stíganda frá Leysingjastöðum II (8.27) og Sendingu frá Kaldbak (7.90). Undan Sendingu eru til þrjú 1.v afkvæmi, Vænting (8.21) en hún er móðir Mídasar frá Kaldbak. Sunna (8.26) og Himnasending (8.12) Sending er svo undan Heru frá Jaðri (7.82) (hún er líka móðir Eldjárns frá Tjaldhólum 8.55) og Galdri frá Uxahrygg. Spennandi hryssa sem við hlökkum til að vinna með, en hún virðist vera geðgóð og ljúf klárhryssa.
Af öðrum búskap er það að frétta að við sæddum ca 30. kindur þann 8-10 des, við þeim Jökli, Blakk, Sokka, Prófasti, Gosa, Púka og Snæ. Það lítur út fyrir að það hafi haldið vel úr sæðingunum. Slepptum við heimahrútunum í ærnar þann 17.des.
Segjum þetta gott í bili og óskum við ykkur gleðilegs nýs árs !!
- 1
