01.03.2012 11:38
Betra er seint en aldrei
Óskírður Erlingsson
Langt er orðið síðan ég skrifaði hérna á síðuna, en þónokkuð hefur á daga okkar drifið síðan síðast. Okkur Erlingi fæddist þann 5.janúar fallegur lítill strákur, en hann hefur tekið mest allan tímann af ritara þessarar síðu síðan þá ;) Annars er nóg að gera í þjálfun hrossa og gengur vel, en 10 hross eru á húsi hjá okkur hérna á Hólum. Erlingur er nýkominn frá Svíþjóð og kennir svo eða keppir allar helgar í mars, þannig hann lítur varla upp þessa dagana !!
Við ákváðum einnig að nýta okkur aðstæðurnar og sendum frá okkur í þjálfunarhesta-prógrammið hér á Hólum hana Byltingu okkar, og hlökkum við til að sjá hvernig hún spjarar sig í því hlutverki. Aðra helgi er svo stefnan tekin á Mývatn Open, það er alltaf mikil tilhlökkun fyrir því móti enda virkilega skemmtilegt í alla staði og góð aðstaða. Vonumst við til að sjá sem flesta þar :)
Ég vil líka benda á það að tvö ný hross eru komin í söluflokkinn hjá okkur, stór og faxprúður, efnilegur fjórgangari og efnileg Gígjarsdóttir.
Segji þetta gott í bili !!
30.12.2011 15:25
Ný hryssa bætist í hópinn
Gleðileg jól öll sömul !!
Desember mánuður hefur verið frekar rólegur, en hann byrjaði á Svíþjóðarferð Erlings þar sem hann var við kennslu. Svo tóku við próf á Hólum og um miðjan mánuð vorum við nánast komin í "jólafrí". Tókum við hrossin að sjálfsögðu með okkur heim í sveitina, svo hægt væri að sinna þeim sem skyldi yfir hátíðarnar. Gott var að koma heim í Bárðardalinn til fjölskyldunnar og allra hundanna og kattarins, en hann er mjög ósáttur við fjarveru okkar-enda mikill selskapsköttur !!
Milli jóla og nýárs var öllum hrossunum smalað heim, klipptir hófar og gefið ormalyf. Þótti okkur ástand hrossanna býsna gott, voru þau sælleg og litu vel út.
Frá því er helst að segja í fréttum að bæst hefur ný hryssa í hrossahópinn okkar, og læt ég fylgja með smá upplýsingar um hana hér að neðan:
Bylting frá Kaldbak er undan Stíganda frá Leysingjastöðum II (8.27) og Sendingu frá Kaldbak (7.90). Undan Sendingu eru til þrjú 1.v afkvæmi, Vænting (8.21) en hún er móðir Mídasar frá Kaldbak. Sunna (8.26) og Himnasending (8.12) Sending er svo undan Heru frá Jaðri (7.82) (hún er líka móðir Eldjárns frá Tjaldhólum 8.55) og Galdri frá Uxahrygg. Spennandi hryssa sem við hlökkum til að vinna með, en hún virðist vera geðgóð og ljúf klárhryssa.
Af öðrum búskap er það að frétta að við sæddum ca 30. kindur þann 8-10 des, við þeim Jökli, Blakk, Sokka, Prófasti, Gosa, Púka og Snæ. Það lítur út fyrir að það hafi haldið vel úr sæðingunum. Slepptum við heimahrútunum í ærnar þann 17.des.
Segjum þetta gott í bili og óskum við ykkur gleðilegs nýs árs !!
28.11.2011 23:00
Drottningarnar komnar á hús !

Allt gott er að frétta héðan af Hólum, og mikið að gera. Ganga tamningar og þjálfun hrossa vel fyrir sig. Þorbirna okkar tekur góðum breytingum, og er ég bara nokkuð ánægð með hana-en hún er slysafang, fædd 2007. Þjálfunarhrossin líst okkur bara nokkuð vel á, en þau eru frekar jákvæð og skemmtileg.
Annars er frá því að segja að þær stöllur Þerna okkar og Hátíð frá Syðra-Fjalli komu á hús núna í vikunni, og er mikil tilhlökkun að byrja á þeim, enda miklir gæðingar þar á ferð. Þær eru nokkuð ólíkar, en sú fyrrnefnda er klárhryssa og sú síðarnefnda er alhliða. Stefnt er með þær báðar í dóm í vor, en þess má geta að Hátíð er eitt af hæst dæmdu afkvæmum Blæs frá Torfunesi og var m.a á Landsmótinu nú í sumar í 5.v flokknum. Teljum við að þær eigi báðar ennþá töluvert inni.
Síðustu kennsludagar Reiðmannsinns voru s.l helgi og er "hann" því kominn í jólafrí þetta árið. Næst á dagskrá er svo kennsluferð til Svíþjóðar dagana 1 til 5 des, þar sem Erlingur kennir á tveimur stöðum í þetta skiptið.
Læt þetta gott heita í bili, góðar stundir !
23.10.2011 16:55
Haustfréttir
Skorri og Blíða á góðum degi
Þá er komið að því að gera upp haustið........
Við fluttum okkur um set um miðjan september og búum nú að Hólum í Hjaltadal þar sem Erlingur starfar sem reiðkennari, en höldum einnig heimili á Sandhaugum þar sem feður okkar Ingvar og Óli sjá um sauðfjár og hundabúskapinn.
Haustverkin gengu vel með tilheyrandi smalamennskum og sláturtíð, og komum við vel undan sumri hvað það varðar. Þó setti það strik í reikninginn að aðalsmalinn á heimilinu til langs tíma, Skorri Bordercollie hundurinn hans Erlings kvaddi þennan heim nú síðla sumars. En hans var sárt saknað við smölun nú í haust og erfitt verður að fylla í hans spor hvað drift, vilja og ósérhlífni varðar.
Hlynur okkar fór í unghestahólf á Syðra-Fjalli, en ekki voru þeir Máttur og Mugison (Máttar og Möttuls-synir) jafn heppnir, en Gestur dýralæknir kom á dögunum og gelti þá fyrir okkur. Fallegir folar þó.....
Gunnar frá Hlíðarenda, stóðhestsefnið okkar undan Karon og Gígjari er farinn að stíga sín fyrstu skref í tamningu, en hann var tekinn inn á dögunum og gengur bara vel með folann, enda mjög ljúfur og meðfærilegur í alla staði. Þorbirna okkar var líka tekin inn á sama tíma, en hún er nú á 5 vetur, undan Nótt og Gauta, hún var frumtamin af Veroniku sem var verknemi hjá Erlingi í fyrra. Gaman verður að sjá hvernig hún þróast, en okkur líst bara nokkuð vel á hana. Nokkur hross eru einnig komin í þjálfun hjá Erlingi og von er á fleirum þegar líða tekur á haustið/veturinn.
Mikið er líka að gera í reiðkennslu hjá Erlingi utan vinnu, en hann sér áfram um Reiðmanninn http://vefur.lbhi.is/pages/1698 á Akureyri, ásamt því að sinna reglulegri kennslu í Svíþjóð.
Þá held ég að haustið hafi verið gert upp í stórum dráttum !
04.10.2011 22:37
Glanni frá Steinnesi

Til sölu !
Glanni frá Steinnesi er 7.vetra foli undan Gammi frá Steinnesi og Gyðju frá
Steinnesi. Hágengur klárhestur með góðar gangtegundir og vilja. Þetta er hestur
sem gæti sómað sér vel á keppnisbrautinni, eða sem glæsilegur reiðhestur. Glanni
hefur gott geðslag en getur verið aðeins viðkvæmur, svo hann hentar ekki fyrir
byrjendur. Hann er þó alveg laus við alla vitleysu og er þægur. Virkilega skemmtilegur og vaxandi klár.
15.08.2011 15:06
Breytingar framundan....

Erlingur og Þerna
Nóg er um að vera þessa dagana, nýafstaðið Einarsstaðamót gekk nokkuð vel og var Erlingur þar með þó nokkuð af hrossum á sínum snærum. Einnig lánuðum við nokkra hesta til keppni í barna, unglinga, B-flokk og öldungaflokk. Frábært mót í alla staði og veðrið og félagsskapurinn var góður.
Gerpla kom heim í vikunni með staðfest fyl við Eld frá Torfunesi og vakti það heldur betur lukku á heimilinu ! En frumburður hennar, hryssa undan Kappa frá Kommu lofar heldur betur góðu.
Í vikunni er svo Erlingur að fara í kennsluferð til Svíþjóðar og verður þar fram í næstu viku, en þetta er hans fasti hópur sem einnig heimsótti okkur á LM í sumar. Í september byrjar hann með nýjan hóp úti, og verður það vonandi reglulegt eins og þessi sem fyrir er.
Búferlaflutningar eru líka á listanum, en Erlingi bauðst í sl. viku starf reiðkennara við Hólaskóla, og eftir þónokkrar vangaveltur ákváðum við að slá til og flytja okkur í Skagafjörðinn, en þó ekki alfarið. Við flytjum þó ekki "alveg", heldur höldum við Sandhaugum og verðum þar áfram með búskap. Semsagt spennandi tímar framundan !!
Erlingur tekur að sér hross í þjálfun og tamningu í vetur á Hóla, þeir sem hafa hug á því að koma til hans hrossum eru beðnir að hafa samband í síma 892-5459 eða á doladottir@gmail.com eða erlinguri@gmail.com .
Þangað til næst.....fari þið vel með ykkur !!
08.08.2011 13:00
Stórmót Þjálfa 2011

Vildi bara vekja athygli á því að nú eru komnar fullt af nýjum myndum frá Einarsstaðamótinu dagana 6-7 ágúst sl. Ef þið hafið áhuga á að eignast e-ð af þessum myndum þá endilega hafi þið samband við Diljá í síma 823-0811 eða á doladottir@gmail.com. Albúmið heitir Svipmynndir af Einarsstöðum 2011.
Bkv. og takk fyrir frábært mót öllsömul :)
04.08.2011 14:12
Yfir heiði háa.......tralllalllala !!

Þerna frá Hlíðarenda
Ætla ég mér nú að stikla á stóru þar sem frá var horfið.......
Farið var á Landsmót, en Erlingur tók þátt í B-flokki með hryssuna sína Þernu frá Hlíðarenda og gekk það ágætlega, þó þau kæmust ekki í milliriðil að þessu sinni. Hún tók einnig þátt í afkvæmasýningu Þrists frá Feti, sem tók þar á móti verðlaunum fyrir afkvæmi. Virkilega flottur hópur þar á ferð. Eina hryssu var hann með í flokki 5.v og var það hestagullið Hátíð frá Syðra-Fjalli, gekk það vel enda hryssa sem býr yfir miklum hæfileikum, fótaburði og einstöku geðslagi. Síðast en ekki síst, var það Möttull frá Torfunesi sem Erlingur fór með í A-flokkinn eftir nokkrar vangaveltur, því hann var líka með tölur til að fara sem kynbótahestur. Stóðu þeir félagar sig vonum framar og enduðu í 10.sæti og með 3.hæstu einkunn fyrir skeið í A-flokki yfir allt mótið !! Einnig tóku hann og Hátíð þátt í afkvæmasýningu Blæs frá Torfunesi sem þar tók á móti verðlaunum.
Langar okkur til að þakka sérstaklega Magnúsi og Ingunni á Miðsitju fyrir þægilegheit og frábæra aðstöðu, en þar höfðum við hrossin okkar allt mótið í frábæru yfirlæti. Takk fyrir okkur !!!!
Eftir skemmtilegt Landsmót var svo haldið heim á leið og var þá farið í stutta og góða hestaferð, en það var nauðsynlegt eftir nokkuð langa pásu hjá heimahrossunum. Farið var á nokkrum dögum í Sand til vinar okkar Gunnars Óla, en langt er síðan við fengum heimboð þangað. Frábær ferð með góðu fólki og skemmtilegum reiðleiðum.
Einnig má koma því að, að meðan á hestaferðinni stóð fór Schafer tíkin okkar hún Aska á sýningu Scaferdeildarinnar fyrir sunnan og kom heim með bikar. Hún var hæst í sínum flokki auk þess sem ræktunin sem hún kemur frá- www.kolgrima.is brilleraði alveg á þessari sýningu !!
Um nýafstaðna verslunarmannahelgi var svo haldið í okkar árlegu hestaferð, sem er að venju eingöngu mönnuð úrvalsfólki og skemmtikröftum !! Var að þessu sinni farið í Ytri-Mosa, eða Mosakofa eins og hann er kallaður. Riðið var af stað á fimmtudegi með c.a 50.hross og voru dagleiðir stuttar og skemmtilegar. Á laugardeginum var svo gist í Mosakofa og var þar mikið fjör, sungið og spilað, varðeldur og heimatilbúin skemmtiatriði :D Endað var svo heima á Sandhaugum á mánudeginum, allir glaðir og með góðar minningar í farteskinu.
Viljum við þakka ykkur kæru vinir fyrir frábæra helgi og er okkur svo sannarlega farið að hlakka til næstu ferðar !
Þegar þetta er skrifað hér í eldhúsinu á Sandhaugum erum við að leggja lokahönd á plan helgarinnar, en það er Stórmót Þjálfa sem haldið er þessa helgi á Einarsstöðum. Hlökkum við til að sjá ykkur þar sem flest.....Góða helgi !!
P.S. Set líka inn jafnt og þétt nýjar myndir frá viðburðum sumarsins.
20.06.2011 16:12
Loksins !!

Ónefnd Gerplu og Kappadóttir
Þá er hún komin í heiminn hryssan okkar undan Kappa og Gerplu ! Ég reyndist ekki alveg sannspá því það vantaði stjörnuna ;) Heilsast þeim mæðgum vel og er sú litla bísna sperrt. Við erum búin að ákveða hvaða hestur verður fyrir valinu næst fyrir Gerplu og er það Eldur frá Torfunesi, en Erlingur tamdi hann í vetur og er þarna frábær hestur á ferð, bæði í hæfileikum og geðslagi.
Annars er það í fréttum að Erlingur fer með þrjú hross á LM, Þernu í B-flokkinn, Möttul í A-flokk og Hátíð frá Syðra-Fjalli í 5.vetra hryssur. Einnig tekur hann að sjálfsögðu þátt í afkvæmasýningu Blæs, en nóg af góðum hrossum koma þar til greina. Þerna kemur líka til með að taka þátt í afkvæmasýningu Þrists frá Feti.
Þannig að undirbúningur er komin á fullt og er stefnan tekin á Skagafjörðinn nú í vikunni, þar sem við verðum í góðra vina hópi !! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest :)
Setti líka inn nokkrar nýjar myndir.....
06.06.2011 12:35
Fréttir af ýmsu

Hátíð frá Syðra-Fjalli Möttull frá Torfunesi
Nokkuð langt er síðan ég skrifaði hér síðast svo ég ætla að stikla aðeins á stóru.....
- 1
