30.12.2011 15:25
Ný hryssa bætist í hópinn
Gleðileg jól öll sömul !!
Desember mánuður hefur verið frekar rólegur, en hann byrjaði á Svíþjóðarferð Erlings þar sem hann var við kennslu. Svo tóku við próf á Hólum og um miðjan mánuð vorum við nánast komin í "jólafrí". Tókum við hrossin að sjálfsögðu með okkur heim í sveitina, svo hægt væri að sinna þeim sem skyldi yfir hátíðarnar. Gott var að koma heim í Bárðardalinn til fjölskyldunnar og allra hundanna og kattarins, en hann er mjög ósáttur við fjarveru okkar-enda mikill selskapsköttur !!
Milli jóla og nýárs var öllum hrossunum smalað heim, klipptir hófar og gefið ormalyf. Þótti okkur ástand hrossanna býsna gott, voru þau sælleg og litu vel út.
Frá því er helst að segja í fréttum að bæst hefur ný hryssa í hrossahópinn okkar, og læt ég fylgja með smá upplýsingar um hana hér að neðan:
Bylting frá Kaldbak er undan Stíganda frá Leysingjastöðum II (8.27) og Sendingu frá Kaldbak (7.90). Undan Sendingu eru til þrjú 1.v afkvæmi, Vænting (8.21) en hún er móðir Mídasar frá Kaldbak. Sunna (8.26) og Himnasending (8.12) Sending er svo undan Heru frá Jaðri (7.82) (hún er líka móðir Eldjárns frá Tjaldhólum 8.55) og Galdri frá Uxahrygg. Spennandi hryssa sem við hlökkum til að vinna með, en hún virðist vera geðgóð og ljúf klárhryssa.
Af öðrum búskap er það að frétta að við sæddum ca 30. kindur þann 8-10 des, við þeim Jökli, Blakk, Sokka, Prófasti, Gosa, Púka og Snæ. Það lítur út fyrir að það hafi haldið vel úr sæðingunum. Slepptum við heimahrútunum í ærnar þann 17.des.
Segjum þetta gott í bili og óskum við ykkur gleðilegs nýs árs !!
28.11.2011 23:00
Drottningarnar komnar á hús !

Allt gott er að frétta héðan af Hólum, og mikið að gera. Ganga tamningar og þjálfun hrossa vel fyrir sig. Þorbirna okkar tekur góðum breytingum, og er ég bara nokkuð ánægð með hana-en hún er slysafang, fædd 2007. Þjálfunarhrossin líst okkur bara nokkuð vel á, en þau eru frekar jákvæð og skemmtileg.
Annars er frá því að segja að þær stöllur Þerna okkar og Hátíð frá Syðra-Fjalli komu á hús núna í vikunni, og er mikil tilhlökkun að byrja á þeim, enda miklir gæðingar þar á ferð. Þær eru nokkuð ólíkar, en sú fyrrnefnda er klárhryssa og sú síðarnefnda er alhliða. Stefnt er með þær báðar í dóm í vor, en þess má geta að Hátíð er eitt af hæst dæmdu afkvæmum Blæs frá Torfunesi og var m.a á Landsmótinu nú í sumar í 5.v flokknum. Teljum við að þær eigi báðar ennþá töluvert inni.
Síðustu kennsludagar Reiðmannsinns voru s.l helgi og er "hann" því kominn í jólafrí þetta árið. Næst á dagskrá er svo kennsluferð til Svíþjóðar dagana 1 til 5 des, þar sem Erlingur kennir á tveimur stöðum í þetta skiptið.
Læt þetta gott heita í bili, góðar stundir !
23.10.2011 16:55
Haustfréttir
Skorri og Blíða á góðum degi
Þá er komið að því að gera upp haustið........
Við fluttum okkur um set um miðjan september og búum nú að Hólum í Hjaltadal þar sem Erlingur starfar sem reiðkennari, en höldum einnig heimili á Sandhaugum þar sem feður okkar Ingvar og Óli sjá um sauðfjár og hundabúskapinn.
Haustverkin gengu vel með tilheyrandi smalamennskum og sláturtíð, og komum við vel undan sumri hvað það varðar. Þó setti það strik í reikninginn að aðalsmalinn á heimilinu til langs tíma, Skorri Bordercollie hundurinn hans Erlings kvaddi þennan heim nú síðla sumars. En hans var sárt saknað við smölun nú í haust og erfitt verður að fylla í hans spor hvað drift, vilja og ósérhlífni varðar.
Hlynur okkar fór í unghestahólf á Syðra-Fjalli, en ekki voru þeir Máttur og Mugison (Máttar og Möttuls-synir) jafn heppnir, en Gestur dýralæknir kom á dögunum og gelti þá fyrir okkur. Fallegir folar þó.....
Gunnar frá Hlíðarenda, stóðhestsefnið okkar undan Karon og Gígjari er farinn að stíga sín fyrstu skref í tamningu, en hann var tekinn inn á dögunum og gengur bara vel með folann, enda mjög ljúfur og meðfærilegur í alla staði. Þorbirna okkar var líka tekin inn á sama tíma, en hún er nú á 5 vetur, undan Nótt og Gauta, hún var frumtamin af Veroniku sem var verknemi hjá Erlingi í fyrra. Gaman verður að sjá hvernig hún þróast, en okkur líst bara nokkuð vel á hana. Nokkur hross eru einnig komin í þjálfun hjá Erlingi og von er á fleirum þegar líða tekur á haustið/veturinn.
Mikið er líka að gera í reiðkennslu hjá Erlingi utan vinnu, en hann sér áfram um Reiðmanninn http://vefur.lbhi.is/pages/1698 á Akureyri, ásamt því að sinna reglulegri kennslu í Svíþjóð.
Þá held ég að haustið hafi verið gert upp í stórum dráttum !
04.10.2011 22:37
Glanni frá Steinnesi

Til sölu !
Glanni frá Steinnesi er 7.vetra foli undan Gammi frá Steinnesi og Gyðju frá
Steinnesi. Hágengur klárhestur með góðar gangtegundir og vilja. Þetta er hestur
sem gæti sómað sér vel á keppnisbrautinni, eða sem glæsilegur reiðhestur. Glanni
hefur gott geðslag en getur verið aðeins viðkvæmur, svo hann hentar ekki fyrir
byrjendur. Hann er þó alveg laus við alla vitleysu og er þægur. Virkilega skemmtilegur og vaxandi klár.
15.08.2011 15:06
Breytingar framundan....

Erlingur og Þerna
Nóg er um að vera þessa dagana, nýafstaðið Einarsstaðamót gekk nokkuð vel og var Erlingur þar með þó nokkuð af hrossum á sínum snærum. Einnig lánuðum við nokkra hesta til keppni í barna, unglinga, B-flokk og öldungaflokk. Frábært mót í alla staði og veðrið og félagsskapurinn var góður.
Gerpla kom heim í vikunni með staðfest fyl við Eld frá Torfunesi og vakti það heldur betur lukku á heimilinu ! En frumburður hennar, hryssa undan Kappa frá Kommu lofar heldur betur góðu.
Í vikunni er svo Erlingur að fara í kennsluferð til Svíþjóðar og verður þar fram í næstu viku, en þetta er hans fasti hópur sem einnig heimsótti okkur á LM í sumar. Í september byrjar hann með nýjan hóp úti, og verður það vonandi reglulegt eins og þessi sem fyrir er.
Búferlaflutningar eru líka á listanum, en Erlingi bauðst í sl. viku starf reiðkennara við Hólaskóla, og eftir þónokkrar vangaveltur ákváðum við að slá til og flytja okkur í Skagafjörðinn, en þó ekki alfarið. Við flytjum þó ekki "alveg", heldur höldum við Sandhaugum og verðum þar áfram með búskap. Semsagt spennandi tímar framundan !!
Erlingur tekur að sér hross í þjálfun og tamningu í vetur á Hóla, þeir sem hafa hug á því að koma til hans hrossum eru beðnir að hafa samband í síma 892-5459 eða á doladottir@gmail.com eða erlinguri@gmail.com .
Þangað til næst.....fari þið vel með ykkur !!
08.08.2011 13:00
Stórmót Þjálfa 2011

Vildi bara vekja athygli á því að nú eru komnar fullt af nýjum myndum frá Einarsstaðamótinu dagana 6-7 ágúst sl. Ef þið hafið áhuga á að eignast e-ð af þessum myndum þá endilega hafi þið samband við Diljá í síma 823-0811 eða á doladottir@gmail.com. Albúmið heitir Svipmynndir af Einarsstöðum 2011.
Bkv. og takk fyrir frábært mót öllsömul :)
04.08.2011 14:12
Yfir heiði háa.......tralllalllala !!

Þerna frá Hlíðarenda
Ætla ég mér nú að stikla á stóru þar sem frá var horfið.......
Farið var á Landsmót, en Erlingur tók þátt í B-flokki með hryssuna sína Þernu frá Hlíðarenda og gekk það ágætlega, þó þau kæmust ekki í milliriðil að þessu sinni. Hún tók einnig þátt í afkvæmasýningu Þrists frá Feti, sem tók þar á móti verðlaunum fyrir afkvæmi. Virkilega flottur hópur þar á ferð. Eina hryssu var hann með í flokki 5.v og var það hestagullið Hátíð frá Syðra-Fjalli, gekk það vel enda hryssa sem býr yfir miklum hæfileikum, fótaburði og einstöku geðslagi. Síðast en ekki síst, var það Möttull frá Torfunesi sem Erlingur fór með í A-flokkinn eftir nokkrar vangaveltur, því hann var líka með tölur til að fara sem kynbótahestur. Stóðu þeir félagar sig vonum framar og enduðu í 10.sæti og með 3.hæstu einkunn fyrir skeið í A-flokki yfir allt mótið !! Einnig tóku hann og Hátíð þátt í afkvæmasýningu Blæs frá Torfunesi sem þar tók á móti verðlaunum.
Langar okkur til að þakka sérstaklega Magnúsi og Ingunni á Miðsitju fyrir þægilegheit og frábæra aðstöðu, en þar höfðum við hrossin okkar allt mótið í frábæru yfirlæti. Takk fyrir okkur !!!!
Eftir skemmtilegt Landsmót var svo haldið heim á leið og var þá farið í stutta og góða hestaferð, en það var nauðsynlegt eftir nokkuð langa pásu hjá heimahrossunum. Farið var á nokkrum dögum í Sand til vinar okkar Gunnars Óla, en langt er síðan við fengum heimboð þangað. Frábær ferð með góðu fólki og skemmtilegum reiðleiðum.
Einnig má koma því að, að meðan á hestaferðinni stóð fór Schafer tíkin okkar hún Aska á sýningu Scaferdeildarinnar fyrir sunnan og kom heim með bikar. Hún var hæst í sínum flokki auk þess sem ræktunin sem hún kemur frá- www.kolgrima.is brilleraði alveg á þessari sýningu !!
Um nýafstaðna verslunarmannahelgi var svo haldið í okkar árlegu hestaferð, sem er að venju eingöngu mönnuð úrvalsfólki og skemmtikröftum !! Var að þessu sinni farið í Ytri-Mosa, eða Mosakofa eins og hann er kallaður. Riðið var af stað á fimmtudegi með c.a 50.hross og voru dagleiðir stuttar og skemmtilegar. Á laugardeginum var svo gist í Mosakofa og var þar mikið fjör, sungið og spilað, varðeldur og heimatilbúin skemmtiatriði :D Endað var svo heima á Sandhaugum á mánudeginum, allir glaðir og með góðar minningar í farteskinu.
Viljum við þakka ykkur kæru vinir fyrir frábæra helgi og er okkur svo sannarlega farið að hlakka til næstu ferðar !
Þegar þetta er skrifað hér í eldhúsinu á Sandhaugum erum við að leggja lokahönd á plan helgarinnar, en það er Stórmót Þjálfa sem haldið er þessa helgi á Einarsstöðum. Hlökkum við til að sjá ykkur þar sem flest.....Góða helgi !!
P.S. Set líka inn jafnt og þétt nýjar myndir frá viðburðum sumarsins.
20.06.2011 16:12
Loksins !!

Ónefnd Gerplu og Kappadóttir
Þá er hún komin í heiminn hryssan okkar undan Kappa og Gerplu ! Ég reyndist ekki alveg sannspá því það vantaði stjörnuna ;) Heilsast þeim mæðgum vel og er sú litla bísna sperrt. Við erum búin að ákveða hvaða hestur verður fyrir valinu næst fyrir Gerplu og er það Eldur frá Torfunesi, en Erlingur tamdi hann í vetur og er þarna frábær hestur á ferð, bæði í hæfileikum og geðslagi.
Annars er það í fréttum að Erlingur fer með þrjú hross á LM, Þernu í B-flokkinn, Möttul í A-flokk og Hátíð frá Syðra-Fjalli í 5.vetra hryssur. Einnig tekur hann að sjálfsögðu þátt í afkvæmasýningu Blæs, en nóg af góðum hrossum koma þar til greina. Þerna kemur líka til með að taka þátt í afkvæmasýningu Þrists frá Feti.
Þannig að undirbúningur er komin á fullt og er stefnan tekin á Skagafjörðinn nú í vikunni, þar sem við verðum í góðra vina hópi !! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest :)
Setti líka inn nokkrar nýjar myndir.....
06.06.2011 12:35
Fréttir af ýmsu

Hátíð frá Syðra-Fjalli Möttull frá Torfunesi
Nokkuð langt er síðan ég skrifaði hér síðast svo ég ætla að stikla aðeins á stóru.....
09.05.2011 19:07
Sauðburður hafinn !
Nú er sauðburðurinn að komast á fullt skrið og langir, en skemmtilegir dagar framundan. Þegar þetta er skrifað eru 112 lömb fædd og heilsast vel ! Mikið er einnig að gera í þjálfun kynbótahrossa þessa dagana enda sýningar byrjaðar, og er stefnt með u.þ.b 10-11 hross í dóm nú í vor. Að þessu sinni eru það hryssurnar sem eru í meirihluta, þær eru c.a 8 en graðhestarnir ca 2-3. Aðeins 2 hross fara í dóm í sumar sem við eigum, það eru þær Þerna frá Hlíðarenda og Klökk frá Kiðafelli- sú fyrri nú í vor en hin að öllum líkindum í ágúst.
Segji þetta gott í bili af fréttum úr sveitinni :)
18.04.2011 22:15
Flott sýning

Gerpla og Erlingur
Um helgina fór fram sýningin Fákar og Fjör í Top Reiter höllinni á Akureyri. Mikið var af góðum hrossum gekk sýningin vel. Erlingur var þarna með nokkur hross og fékk til liðs við sig velkunna knapa. Þau hross sem farið var með til sýningarinnar voru þau Hátíð frá Syðra-Fjalli, Sigurrós frá Eyri setin af Tryggva Björnssyni, Möttull og Blær frá Torfunesi setnir af þeim Mette og Gísla, en þetta voru hrossin-eins og ykkur grunar, í afkvæmahóp Blæs. Skemmst er frá því að segja að þetta var-þó ég sé hlutdræg, eitt af eftirminnilegustu atriðum kvöldsins ! Einnig tók Erlingur þátt í ræktunarhóp frá Steinnesi og mætti þar til leiks með Glanna, efnilegan klárhest. Í fyrsta atriði kvöldsins var svo Taktur frá Torfunesi, setinn af Erlingi. Vorum við virkilega sátt með þessa sýningu og þökkum öllum hjartanlega fyrir okkur-bæði aðstandendum sýningarinnar og líka Palla Alfreðs og hans konu sem lánuðu okkur hesthúsið sitt. Takk fyrir okkur !!
05.04.2011 12:32
Smá fréttir
Möttull og Erlingur
Nokkuð hefur á daga okkar drifið frá því ég skrifaði hér síðast. Má þar nefna lokakvöld KS og KEA-deildanna og síðast en ekki síst Stóðhestaveisluna sem haldin var þann 1.apríl í Svaðastaðahöllinni.
Þess má einnig geta að Möttull frá Torfunesi hefur nú skipt um eigendur og er það góðvinkona okkar frá Svíþjóð, Linnéa Brofeldt sem fest hefur kaup á gæðingnum. Hann verður þó í umsjá Erlings fram á haust og stefna þeir á að koma e-ð fram í vor og sumar.
Erlingur fór með þá feðga Blæ og Möttul í skeiðið í KEA deildinni og gekk vel, en þeir enduðu í 3 og 4 sæti. Möttull á 5.30 sek og Blær á 5.36 sek. Fóru þeir sprettina af miklu öryggi og glæsileik.
Var svo komið að lokakvöldi KS-deildarinnar skömmu seinna og mætti bóndinn þá til leiks með Dröfn frá Torfunesi í smalann og Möttul í skeiðið. Fóru leikar þannig að Dröfn komst ekki áfram í smalanum en Möttull endaði í 4.sæti í skeiðinu með tímann 5.17. Með þessu tryggði Erlingur sér áframhaldandi keppnisrétti í KS-deildinni að ári.
Stóðhestaveislan í Svaðastaðahöllinni hefur ekki farið framhjá neinum, en þar komu m.a fram afkvæmi Blæs frá Torfunesi. Erlingur sýndi þar gæðingshryssuna Hátíð frá Syðra-Fjalli, en hún var á síðasta ári komin inn á LM í flokki 4.vetra hryssna. Með þeim í atriði voru þau Úlfhildur Sigurðardóttir á Sveiflu frá Hóli og Tryggvi Björnsson á Dynfara frá Steinnesi sem er ungur og efnilegur stóðhestur. Í seinna Blæs- atriðinu voru þeir Erlingur og Tryggvi með þá Möttul og Kaftein frá Kommu, en sá síðarnefndi er virkilega myndarlegur og efnilegur stóðhestur undan Kjarnorku frá sama bæ. Næst er svo stefnan tekin á stórsýninguna Fáka og Fjör í Top Reiter höllinni þann 16.apríl næstkomandi, og verður spennandi að sjá hvaða hrossum verður telft fram þá !
Lagði ég einnig land undir fót nú á dögunum, m.a til að rækta frændskapinn og heimsótti stórbændurna í Steinnesi og á Leysingjastöðum ll. Kann ég þeim bestu þakkir fyrir frábæran dag og augljóst er, að það er mikið af upprennandi stórstjörnum þar á ferð-svo ekki sé meira sagt
Vona að þið eigið góðar stundir, og endilega kvitta í gestabókina !!
13.03.2011 17:33
Góð helgi að baki
Blær frá Torfunesi Möttull frá Torfunesi
Nú um helgina var Mývatn Open haldið og mikið um að vera. Átti "hátíðin" að byrja á föstudaginn með reiðtúr um ísilagt vatnið en vegna veðurs varð að hætta við hann. Laugardagurinn var hins vegar eins og best verður á kosið, sól og stillt veður, þó svolítið kalt. Keppt var í A og B tölti, stóðhestaflokki og skeiði, en keppnismaðurinn á bænum tók þátt með fimm hross. Það voru hryssurnar Sigurrós frá Eyri 5.v, Þerna frá Hlíðarenda 7.v, Taktur frá Torfunesi 6.v sem fóru í A-töltið og gekk nokkuð vel, en öll þessi tölt hross voru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Svo voru það höfðingjarnir og feðgarnir, Blær og Möttull frá Torfunesi sem fóru í stóðhestaflokkinn. Skemmst er frá því að segja að þeir stóðu sig eins og sönnum gæðingum sæmir og urðu í 1 og 2 sæti í forkeppni. Reið Erlingur sjálfur á Blæ, en Linnéa vinkona okkar og nemandi hans frá Svíþjóð fékk að ríða á Möttli í úrslitunum. Fóru leikar þannig að Blær sigraði örugglega, Möttull endaði í þriðja sæti og voru þau Linnéa (og við) hæst ánægð með árangurinn. Síðan til að toppa daginn var Blær valinn glæsilegasti hestur mótsins ! Lauk kvöldinu svo í góðra vina hópi á Sel hótel Mývatn, í frábærum mat og gistingu. -Er búin að setja inn myndir af mótinu.
Takk allir saman fyrir frábæra helgi !!!
07.03.2011 00:06
Nóg að gera
Þorbirna frá Hlíðarenda
Nóg er um að vera í sveitinni eins og oftast, og sérstaklega þessa dagana. Meira en nóg er að gera hjá þeim félögum í Torfunesi og gengur þjálfun vel. Hérna heima er líka að lifna yfir hesta-mennskunni og hesthúsið á Hlíðarenda orðið fullt :) Eru hrossin að komast í gang og skemmtilegir tímar framundan ! Erlingur er um þessar mundir staddur í Svíþjóð að kenna. Kom hópurinn honum aldeilis á óvart en þau voru öll búin að fá sér eins jakka og merkja þá stórum stöfum TEAM ERLINGUR INGVARSSON !! Frábær hópur þar á ferð og ætla einmitt nokkrar hressar skvísur úr þeim hópi að fylgja Erlingi aftur á klakann og vera hjá okkur í viku. Ætla þær m.a fara með okkur á Mývatn Open þann 12.mars næstkomandi. Mikil tilhlökkun er fyrir þessari helgi og eigum við von á fullt af góðum gestum í tengslum við mótið á Mývatni, sterkum hestum og skemmtilegri keppni.
Læt þetta duga í bili og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest um helgina !!
- 1
